Thursday, February 14, 2008

dagur eeeelskenda =P

í nótt var ég eitthvað voða veik, með ógleði og svo mikinn svima að ég komst ekki hjálparlaust að pissa =( en ég komst hjálparlaust inní eldhús þegar ég var búin að liggja andvaka í 3 tíma og hlusta á hroturnar í Bigga... þannig ég hálfskreið inní eldhús og föndraði kort fyrir elskuna mína =) það er reyndar ekkert svaka flott því mig svimaði svo mikið og svo hafði ég svo vond skæri og hefði sennilega orðið strandaglópur í stofunni hefði ég reynt að sækja betri skær... og svo skrifaði ég fallegan texta/lag með lélégum penna inní kortið og límdi mynd af okkur á það með svona uhu stick því enn og aftur komst ég ekki að sækja uhu föndurlímið mitt kæra =(
og svo setti ég kortið á náttborðið hans og gat loksins sofnað rólega =)

þegar ég vaknaði...voru tíu stórar rauðar rósir á náttborðinu mínu, æðislegir bangsar með ljóði og hjartalaga súkkulaði =)

Ég elska manninn minn!



en eitt stelpur og smá ráð takk!
áðan var ég spurð hvort mér væri ekki sama þó að fyrverandi Bigga mætti ekki vera titluð sem frænka gagnvart litla beibíinu...og í fljótfærni og hugsunarleysi sagði ég jájá.... svo fór Biggi í skólann og ég skipta um á rúminu og svona og fór óvart að hugsa um þetta og ég er ekkert svo viss um að ég vilji að hún kalli sig frænku barnsins míns...ég meina konan hatar mig útaf lífinu, fynnst ég hafa stolið hennar lífi og mun aldrey koma í heimsókn til okkar...hvað hefur hún þá að gera með að vera kölluð frænka barnsins, líka þegar einu samskiptin verða í gegnum hundana og blót og svoleiðis þá fynnst mér þetta hálf svona... svo langar mig líka ekkert til að fá kanski vandræðalegar spurningar seinna meir eins og td afhverju talar X frænka aldrey við þig mamma, eða eitthvað í þeim dúrnum...

Er ég að gera kanski of mikið mál úr þessu eða???
hvað segjið þið??

5 comments:

ernasa said...

okey ég verð að bæta þessu inní... ein manneskja sem ég þekki held ég hafi toppað alla með valentínusar kveðju/kort... þessi aðili skrifaði valentínusarkveðju til maka síns á KLÓSETTSETUNA! =D þegar makinn vaknaði í vinnu í morgun og fór á klósettið þá já =) hehe mér fynnst þetta snilld! bara reddað málunum ef maður á ekki blað og penna ;)

Anonymous said...

hehe sniðugt :)
en já ég veit ekki alveg með frænkudæmið, ef hún hatar þig þá á hún ekkert með það að vera kölluð frænka lilla!! það finnst mér ! og p.s. ef hún verður frænka þá pant ég vera frænka og hananú!! ;) farðu varlega :)

Aggatho said...

Eeeh, NEI... screw that chick!
Hugsaðu um það svona, ef hún ætti að gjóta á næstunni fengir þú að vera frænka?

Ég, on the other hand, ætla ekki einu sinni að spyrja hvort ég megi vera frænka!

Til hamingju með Valentínusardaginn, og til hamingju með manninn þinn :)
Kallinn minn var á hljómsveitaræfingu allt kvöldið...
FAIL!

ernasa said...

ég talaði við Bigga og sagði hvað mér fyndist um þetta þannig hún verður ekki titluð sem frænka...

Anonymous said...

Vá er hún einhvað gaga að detta í
hug að fá að vera frænka hahaha
ég er ángæð að þú hafir sagt nei á
endanum :oP En rosalega er hann góður
við þig hehe en gaman að fá að
fylgjst með :) hvenær ertu sett ?