Friday, July 4, 2008

bwahh!

Ég dó næstumþví í gær!
Mín þóttist vera voða flott á því og skellti sér út að hjóla á nýja hjólinu mínu.
ok. það var brjálað rok en ég lét það ekkert á mig fá og hjólaði niðreftir og svo hingað upp aftur. þegar ég var komin hjá elliheimilinu var mig byrjað að svima og sveið eins og andskotann í hálsinn! svo kom ég inn, fjólublá í framan og gat varla andað og hvað þá talað
(við erum að tala um manneskjuna sem var komin með 9 í útvíkkun og talaði í hríðunum)
ég lagðist uppí rúm alveg að kafna og skjálfani í hnjánum og það tók mig örugglega um hálftíma að ná andanum svona nokkurnvegin aftur þá fór ég fram skjálfani í hnjánum og horfði á granna í brjáluðu hóstakasti allan þáttin
(afþví ég er nikótínhóra)
svo var ég langt frameftir kvöldi að ná almennilegum fransbrauðstyrk aftur í leggina...

þetta var svakalegt =S
Ætla samt að skella mér aftur í kveld =)

jæja ég er enn í Grindó =) en fer á morgun!