Wednesday, February 27, 2008

pic game

gat ekki gert þetta á mæspeis =S þannig ég skelli þessu bara hérna ;)

ég skora á Evelyn og Jóhönnu að gera sama =)


1. Go to www.photobucket.com (don't sign in)
2. Type in your answer to the question in the "search" box
3. Use only the first page
4. Copy the html and paste for the answer.

What's your first name?
erna!


Where do you live?
in Reykjavík on the way back to our hotel



What is your relationship status?
engaged


What is your favorite color?
purple/silver_fairy


One word that describes you?
PREGNANT


What are you listening to right now?
sonata arctica


What is your favorite movie?
the shining


Where is your dream vacation?
Hawaii


What are you thinking about right now?
mazda3
MAZDA3!!!!!


Who's your best friend?
OGN 2007!!!
næsta sem ég komst nafninu =)


Nickname?
einstein


What makes you laugh?
Cats - Cats Banging Heads, Clunk


What are you going to do after this?
cook


What are your plans for the weekend?
shopping


What are you addicted to?
cigarettes


What month were you born in?
JUNE


Whats your favorite number?
eight

Favorite hobby?
tv.


Whats your favorite tv show?
Top Gear Christmas

who's your celebrity crush?
johnny depp


Who's your favorite disney princess?
cinderella


Whats your favorite dessert?
banana split

Monday, February 25, 2008

fjúff!

úff....ég hélt að litli ætlaði sér að kíkja í heiminn í gær!!! sem betur fer skipti hann um skoðun! það er ekki allt tilbúið ennþá... ætli hann hafi ekki verið að reka á eftir okkur með að klára! =) enda er ég búin að vera að stauja fötin hans í dag og þvo í höndunum það sem ég átti eftir að þvo þannig =) og mamma dreif sig að byrja að sauma utanum vögguna =) svo kom sonja í dag til að fá að sjá bumbuna áður en hún hverfur =) þetta allavega rak aðeins á eftir manninum mínum að byrja á þessu fjandans ofnakerfi hérna ;) hehehe =)
já þetta var soldið spark í rassinn fyrir okkur "seinnitímavandamálsmanneskjurnar" =P

en jæja nenni ekki að blogga meira...
svooo þreytt eftir allt sem ég er búin að vera að gera í dag!!!
úff hvað orkan mín er búin að minnka =S og það rann nú ekki það hratt í mér blóðið áður!

Tuesday, February 19, 2008

=)

úff þurfti smá að pústa í gær... dýrin voru insane! svo í dag er ég búin að vera að passa hund og það er mikið rólegra og engin pirringur =) enda engin læti í þeim núna...

mmm...er að baka bananabrauð handa manninum mínum =) skil samt ekki hvað þau verða alltaf ljót hjá mér =( bragðast samt alveg vel sko! bara butt ugly! =)

jæja blogga meira seinna, hef ekkert að segja í bili =)

Monday, February 18, 2008

stutt???

hehe jóhanna mér fynnst ég vera búin að vera ólétt geðveikt lengi =P var einmitt að tala um þetta við manninn minn um daginn og okkur fynnst báðum ég sé búin að vera ólétt forever eða eitthvað álíka =)

úff...ég er að verða brjáluð! mér fynnst ég vera alltaf svo pirruð núna! okey reyndar yfir pirrandi hlutum oft, en ég verð stundum held ég aðeins of reið...
eins og áðan stökk hundurinn uppí sófa og þær vita að þær mega ekki fara í sófann og ég varð svo reið, hélt reyndar aðeins aftur af mér með skammirnar en alveg liggurvið titraði af reiði...og kettirnir slógust í glugganum og messuðu upp gardínunum og brutu næstumþví eina skál sem ég á og ég varð brjáluð og fleygði þeim úr glugganum... yfirleitt er ég nú ekki manneskja sem böggar sig yfir hvort gardínurnar séu perfect eða ekki... ég held að þessi pirringur tengist því að ég vil fá smá frið yfir daginn og stundum bara einfaldlega nenni ég ekki að hafa dýrin í rassgatinu á mér allan helvítis daginn! þó það sé ljótt að segja þetta! suma daga eins og í dag þá langar mig að vera alveg algjörlega ein og útaf fyrir mig... allavega þegar ég er svona í skapinu... svo kanski á kvöldin þá er mér alveg sama þó það séu læti í dýrunum og svoleiðis, þetta virðist vera mest á daginn hjá mér þessi pirringur...

garg! nenni ekki að röfla meira um þetta..........................

Saturday, February 16, 2008

...

í gærkvöldi fórum við litla fjölskyldan á tónleika =)
Noise var að spila á Dillon =)
Mamma sagði að ég væri rugluð að fara á tónleika komin 8 mánuði =P
ég var reyndar ekki alla tónleikana, svo var líka rafmagnslaust í örugglega einhvern klukkutíma þannig... Það var mjög spes að labba laugarveginn í rafmagnsleysinu =)
En það var voða gaman að kíkja aðeins út, við hittum marga sem við þekkjum sem maður hittir ekki oft þannig =)og litli fékk m.a. klapp frá selmu/telmu (man ekki hvort hún heitir) vinkona bigga sem ég þekki ekki, krumma, sem samglaðst okkur æðislega og svo fékk hann bónus frá Júrí vinur Bigga og Bryndísi, þar fékk hann klapp og koss =) hann var víst voða vinsæll =)

úff akkurat í þessum skrifuðu orðum er maðurinn minn að tjékka upp húsið!!!
þessvegna ákvað ég að blogga, því ég var að horfa á TV þegar hann byrjaði og fannst frekar spúkí að heyra brakið í skorsteininum og veggjunum þegar húsið var að lyftast =S ég forðaði mér bara inní eldhús! líka ef að hurðirnar skildu festast þá hefði ég fríkað út að vera ein lokuð FÖST inní herbergi! húsið var nefnilega farið að síga smá útaf einhverju drasli hjá einhverjum burðabita í kjallaranum MIÐJUM! ég er fegin að hann ljúki þessu af því ekki langar mig að heimilið okkar hrynji! =S

Thursday, February 14, 2008

dagur eeeelskenda =P

í nótt var ég eitthvað voða veik, með ógleði og svo mikinn svima að ég komst ekki hjálparlaust að pissa =( en ég komst hjálparlaust inní eldhús þegar ég var búin að liggja andvaka í 3 tíma og hlusta á hroturnar í Bigga... þannig ég hálfskreið inní eldhús og föndraði kort fyrir elskuna mína =) það er reyndar ekkert svaka flott því mig svimaði svo mikið og svo hafði ég svo vond skæri og hefði sennilega orðið strandaglópur í stofunni hefði ég reynt að sækja betri skær... og svo skrifaði ég fallegan texta/lag með lélégum penna inní kortið og límdi mynd af okkur á það með svona uhu stick því enn og aftur komst ég ekki að sækja uhu föndurlímið mitt kæra =(
og svo setti ég kortið á náttborðið hans og gat loksins sofnað rólega =)

þegar ég vaknaði...voru tíu stórar rauðar rósir á náttborðinu mínu, æðislegir bangsar með ljóði og hjartalaga súkkulaði =)

Ég elska manninn minn!



en eitt stelpur og smá ráð takk!
áðan var ég spurð hvort mér væri ekki sama þó að fyrverandi Bigga mætti ekki vera titluð sem frænka gagnvart litla beibíinu...og í fljótfærni og hugsunarleysi sagði ég jájá.... svo fór Biggi í skólann og ég skipta um á rúminu og svona og fór óvart að hugsa um þetta og ég er ekkert svo viss um að ég vilji að hún kalli sig frænku barnsins míns...ég meina konan hatar mig útaf lífinu, fynnst ég hafa stolið hennar lífi og mun aldrey koma í heimsókn til okkar...hvað hefur hún þá að gera með að vera kölluð frænka barnsins, líka þegar einu samskiptin verða í gegnum hundana og blót og svoleiðis þá fynnst mér þetta hálf svona... svo langar mig líka ekkert til að fá kanski vandræðalegar spurningar seinna meir eins og td afhverju talar X frænka aldrey við þig mamma, eða eitthvað í þeim dúrnum...

Er ég að gera kanski of mikið mál úr þessu eða???
hvað segjið þið??

Wednesday, February 6, 2008

jæja

við vorum hjá ljósmóðir í morgun =)
litli er víst eitthvað óþekkur og situr bara...
í gær fór ég í óvænta jeppaferð og hann hefur örugglega oltið í hossingnum =P
en ég á að koma aftur í þarnæstu viku og þá verður tjékkað hvort hann verður búinn að snúa sér... spurning um að jeppast aftur og gá hvort hann velti kanski bara aftur til baka =P
Ljósan heldur að hann sé orðin svona cirka 12 merkur =)
Hann er allavega orðin rosa þungur! var hjá tannsa áðan og það var lítið hægt að gera því ég gat ekki legið á bakinu lengur en svona 2 mín! hefði kanski átt bara að leyfa að líða yfir mig þá hefði þetta kanski gengið fljótar =D þurfti alltaf að vera að setjast upp og stinga hausnum á milli lappanna! ekki gaman =(

í gær kíkti ég til grindó =)
Laufey hans Ella lánaði mér vöggusett, sæng, lök, föt og ýmislegt sem okkur vantaði =D núna er bara smá eftir að kaupa =D *spennt*

jæja búin að pústa nóg í bili =)

takk fyrir rúntinn í gær Evelyn =)
btw! ætlaði að spurja þig, veistu hvað tók langan tíma að breytast nafnið hjá Guðrúnu Hildi þegar hún lét breyta sínu??? geturu kanski spurt hana fyrir mig???

hey ögn! ég ætla að leyfa þér að eiga heiðurinn svo þú VERÐIR! að koma til íslands í heimsókn og mata hann á góðri tónlist ;)

Monday, February 4, 2008

=P

um daginn var ég ótrúlega menningarleg og fór út að borða á sushi staðinn í Iðu.
Ég hef nú alltaf haft óbeit á sushi og aldrei skilið í fólki sem að finnst það gott, en núna er ég húkt! Ég tók reyndar ögn á þetta og fékk mér eingöngu grænmetis/ávaxta sushi vegna þess að ég er nokkuð viss um að það sé ekki mælt með að borða hráan fisk á meðgöngu.....og namminamm!!!! um kvöldið lá ég andvaka og sá diskana fyrir mér í hillingum! ÞETTA ER ÓGEÐSLEGA GOTT!!!!

Annars er ég búin að hafa það gott =) er reyndar orðin ýkt þreytt á að eiga bara eina skúffu af fötum sem ég get notað =( get ekki beðið eftir að fá krílið =)
Erum búin að mála herbergið fallega grænt =) og eigum eftir að mála eina umferð yfir hilluna og svo verður farið og keypt kommóða og skiptiborð og þá er eiginlega allt komið =) ég missti mig nefnilega um daginn og keypti samfellur og föt fyrir 20þús =S
svo gat ég ekki labbað framhjá ógeðslega sætum pönkara gallabuxum sem hann á reyndar ekkert eftir að geta notað fyrren svona um eins árs =P æji þær voru bara svo ógeðslega töff!!! =)
Bara fyribyggja strax að þetta verði enginn hnakki sko! ;)
ég er reyndar ekki búin að fá að spila mikið af twisted sister eða alice cooper fyrir hann =S hehe =) en Biggi er voða dúlegur að spila Rammstein fyrir hann þannig =)

en jæja heyri í ykkur seinna, þarf að setja á mig smá andlit því ég er að fá heimsókn eftir smá =)