Tuesday, November 25, 2008

Hann Sokki dáinn =(

Sokki okkar er dáinn =( hann dó líklegast úr elli, var orðinn soldið gamall greyjið =(

Photobucket


Photobucket

Wednesday, November 19, 2008

Jæja þá

Núna er mín komið á fullt í Herbó! var hlaupin svo hrottalega í spik af lyfjunum að mig bauð við mér =S en síja er að fara í mælingu =)

Wednesday, October 1, 2008

I is back...

jæja þá er ég útskrifuð af spítalanum... Er orðin alveg hrikalega feit eftir þessa 10 daga dvöl! =S svo eru það örugllega lyfin líka =( EEN núna verður vonandi allt betra.
Fór á fund í gær uppá áframhaldandi meðferð og verður haft samband við mig í vikunni vonandi. Ég ætla bara að reyna að hafa nóg að gera og hver veit nema Ernan skelli sér ekki bara á eitthvað námskeið eða eitthvað... Kláraði reyndar ekki hitt en ætla að gefa mér mánuð og hafa svo samband, veit nefnilega ekki hvort ég er tilbúin í fjarnámskeið alveg strax... Ég hitti vin minn Aria áðan =D hann fékk heimilisfangið mitt og kíkir kanski í kaffi bráðum =) það er ágætt að fá stundum heimsókn...

en jæja Ögn klukkaði mig víst og hér kemur það =)

Fjögur störf sem ég hef unnið:
Frystihúsinu Arnarvík
Europris
Þjónanemi á nordica
Pökkun í prentsmiðju

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
the Crow
kung pow
Bram strokers dracula
Sódóma Reykjavík

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Glæsivellirnir (því ég er svo glæsileg)
Túngatan
óðinsgata reykjavík
frakkastígur reykjavík

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
House
Eurika
Family guy
Top gear

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
hamborgarahryggur (nammnamm)
hryggur
sojasósa! það er varla hægt að gera mat án hennar!
og gúllas :)

Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
ó mæ kemst upp um mig
frjáls eða fjötruð
er þetta ást (get ekki að því gert en ég hef lesið þær milljón sinnum)
kíversk stjöruspeki(hvar væri ég án hennar)
draumaráðningarbókin mín =)

Fjórir bloggararar sem ég klukka
hvað er þetta ég þekki bara 2 sem hafa ekki gert þetta sem hafa bloggsíðu!!!
telst að blogga á myspace eða soles með???
þá hef ég bara;
Evelyn
Jóhanna
Hrönn
Ari

Wednesday, September 10, 2008

...........

Elsku Össi
Ég bið um styrk fyrir þig og fjölsyldu þína í gegnum þennan erfiða tíma.
Er með kveikt á kerti fyrir þig og sendi þér góðar hugsanir.

þú ert yndislegur strákur, vertu sterkur.....

Thursday, August 7, 2008

ó mig auma =(

og ég sem kallaði flúrið mitt hálfklárað áður.... ó nei núna fyrst er það rétt tæplega hálfnað =( ég var í gær frá hádegi til 20mín yfir 4 uppá tattoo stofu. það þurfti að laga aðeins útlínur og svo voru settar skyggingar í þyrnina og hringinn um krossinn... AND MORE TO COME! þegar verið var að flúra mig kom eh gaur og lét setja á sig, svo eftir smá tíma (vil taka það fram að þegar var byrjað á honum var ég búin að vera ca klukkutíma) þá var hann bara lagstur fram fyrir sig og eitthvað svona ó ohh ó ! ég leit á hann með fyrilitningu og hugsaði; já svo þú heldur að þú sért að þjást! svo var hann búinn á undan mér líka =S ég er ekki hetja! ég entist ekki lengur nefnilega, var farin að þjást undir lokin =( ég er ofboðslega þakklát fyrir að það er langt í næsta tíma! ekki það að ég vilji ekki meir, heldur vegna þess að þá verð ég örugglega búin að gleyma sársaukanum =P

takk fyrir pent =D

Friday, July 4, 2008

bwahh!

Ég dó næstumþví í gær!
Mín þóttist vera voða flott á því og skellti sér út að hjóla á nýja hjólinu mínu.
ok. það var brjálað rok en ég lét það ekkert á mig fá og hjólaði niðreftir og svo hingað upp aftur. þegar ég var komin hjá elliheimilinu var mig byrjað að svima og sveið eins og andskotann í hálsinn! svo kom ég inn, fjólublá í framan og gat varla andað og hvað þá talað
(við erum að tala um manneskjuna sem var komin með 9 í útvíkkun og talaði í hríðunum)
ég lagðist uppí rúm alveg að kafna og skjálfani í hnjánum og það tók mig örugglega um hálftíma að ná andanum svona nokkurnvegin aftur þá fór ég fram skjálfani í hnjánum og horfði á granna í brjáluðu hóstakasti allan þáttin
(afþví ég er nikótínhóra)
svo var ég langt frameftir kvöldi að ná almennilegum fransbrauðstyrk aftur í leggina...

þetta var svakalegt =S
Ætla samt að skella mér aftur í kveld =)

jæja ég er enn í Grindó =) en fer á morgun!

Monday, June 30, 2008

FRÚ erna TAKK!

Ég er alveg ógeðslega löt! ekki búin að blogga síðan 19 mai or sum =S
núna sit ég heima og slaka á með TOM YUM súpu =P *slef* fæ loks smá breik því Jökull Páll er komin með STUBBA-ÆÐI! Aldrei hefði mér grunað að ég mundi einn daginn verða svona þakklát fyrir þessa þætti!
Lítið annars að frétta af mér...

Við Biggi giftum okkur þann 20. og nefndum Jökul
hvolparnir stækka og stækka
Við Biggi förum til krítar í júlí í brúðkaupsferðina okkar


BWAHHHHH!!!!! get ekki hugsað útaf fjandast stubbunum!!!!

stubbunum fynnst gaman að hlusta á lög....*gubb*
stubbunum þykir vænt hvor um annan....*gubb*

Monday, May 19, 2008

bwahh! feit =(

hæhæ =)
Við Biggi prufuðum svona fitumælitæki í gær....og ég er með meiri prósentu en hann =(
*snökt* hann var með 20% og ég með 21%....vitiði hvað er eðlilegt/meðal ???

allavega...fjölskyldan stækkaði örlítið í nótt...við bættust 8 stykki af hvolpum!
Biggi er ekki heima og þetta er rosalega erfitt fyrir mig...
en vonandi verður þetta auðveldara því ég hef ekki geðheilsu í fleiri daga eins og í dag...

Thursday, May 8, 2008

=D

neineinei ég er ekki dauð... bara brjálæðislega bissí =)

og svo bætir ekki stöðuna að ég er að verða amma sennilega bara á næstu dögum =S
4-8 stykki takk fyrir!

HA! ég keypti mér sippuband =D prufaði það í dag og hengdi mig næstumþví!
ég er farin að fitna aftur og ætla sko ekki að verða feit þannig ég ætla að vera dúleg að sippa og strippa =D oh ég ætti að vera skáld ég er svo klár :P

en allavega =) skal reyna að vera dúlegri að blogga ;)

síja

Friday, April 4, 2008

jæja

við Jökull Páll erum ennþá í Grindavík. mikið rosalega er mig farið að langa heim!!!
ættin er farin að halda að Biggi hafi skilað mér =S
een! ég fæ örugglega vagninn á eftir! =D hann er svoo ógeðslega flottur!!!!!!

Photobucket

svona lýtur hann út =D

svo keypti ég svart regnplast á hann og svart flugnanet =)

en jæja ætla að fara að sinna litla og horfa á leiðarljósið mitt =P

síja

Thursday, March 20, 2008

jæja

jæja Jökull Páll er komin með barnalandssíðu =)

Sunday, March 16, 2008

Lítill keisari =D

jæja litli unginn okkar er kominn í heiminn =)
Hann ákvað að koma 6 dögum fyrir settan dag =)
Hann er yndislegur =) fæðingin gekk frekar illa og tók þetta 17 og hálfan tíma, en var sko alveg þess virði þegar ég fékk hann í fangið =)
hann var tæplega 15 merkur eða milli 14 og hálf og 15 og 52cm, ljóshærður með rauðan blæ á hárinu, nákvæmlega eins og pabbi sinn og alveg yndislegur =)
Og var hann nefndur Jökull Páll =)

ég set inn myndir leið og ég get...fæ dótið til þess í kvöld...

núna erum við búin að vera hjá mömmu síðan á föstudag og gengur alltaf betur og betur með hverjum deginum =) en hann er soldið erfiður á nóttunni =( síðustu nótt fékk mín ekki nema 2 og 1/2 tíma svefn =S sem er ekki alveg það sem ég er vön. ég með mína Zombie morgna í Arnarvík =P og 12 tíma fegurðarblunda =P hehehe =)
ég reyni bara að vera dúleg að leggja mig yfir daginn með krílinu =)

en jæja blogga meira seinna =) og læt ykkur vita þegar prinsinn verður kominn með síðu =)

Wednesday, February 27, 2008

pic game

gat ekki gert þetta á mæspeis =S þannig ég skelli þessu bara hérna ;)

ég skora á Evelyn og Jóhönnu að gera sama =)


1. Go to www.photobucket.com (don't sign in)
2. Type in your answer to the question in the "search" box
3. Use only the first page
4. Copy the html and paste for the answer.

What's your first name?
erna!


Where do you live?
in Reykjavík on the way back to our hotel



What is your relationship status?
engaged


What is your favorite color?
purple/silver_fairy


One word that describes you?
PREGNANT


What are you listening to right now?
sonata arctica


What is your favorite movie?
the shining


Where is your dream vacation?
Hawaii


What are you thinking about right now?
mazda3
MAZDA3!!!!!


Who's your best friend?
OGN 2007!!!
næsta sem ég komst nafninu =)


Nickname?
einstein


What makes you laugh?
Cats - Cats Banging Heads, Clunk


What are you going to do after this?
cook


What are your plans for the weekend?
shopping


What are you addicted to?
cigarettes


What month were you born in?
JUNE


Whats your favorite number?
eight

Favorite hobby?
tv.


Whats your favorite tv show?
Top Gear Christmas

who's your celebrity crush?
johnny depp


Who's your favorite disney princess?
cinderella


Whats your favorite dessert?
banana split

Monday, February 25, 2008

fjúff!

úff....ég hélt að litli ætlaði sér að kíkja í heiminn í gær!!! sem betur fer skipti hann um skoðun! það er ekki allt tilbúið ennþá... ætli hann hafi ekki verið að reka á eftir okkur með að klára! =) enda er ég búin að vera að stauja fötin hans í dag og þvo í höndunum það sem ég átti eftir að þvo þannig =) og mamma dreif sig að byrja að sauma utanum vögguna =) svo kom sonja í dag til að fá að sjá bumbuna áður en hún hverfur =) þetta allavega rak aðeins á eftir manninum mínum að byrja á þessu fjandans ofnakerfi hérna ;) hehehe =)
já þetta var soldið spark í rassinn fyrir okkur "seinnitímavandamálsmanneskjurnar" =P

en jæja nenni ekki að blogga meira...
svooo þreytt eftir allt sem ég er búin að vera að gera í dag!!!
úff hvað orkan mín er búin að minnka =S og það rann nú ekki það hratt í mér blóðið áður!

Tuesday, February 19, 2008

=)

úff þurfti smá að pústa í gær... dýrin voru insane! svo í dag er ég búin að vera að passa hund og það er mikið rólegra og engin pirringur =) enda engin læti í þeim núna...

mmm...er að baka bananabrauð handa manninum mínum =) skil samt ekki hvað þau verða alltaf ljót hjá mér =( bragðast samt alveg vel sko! bara butt ugly! =)

jæja blogga meira seinna, hef ekkert að segja í bili =)

Monday, February 18, 2008

stutt???

hehe jóhanna mér fynnst ég vera búin að vera ólétt geðveikt lengi =P var einmitt að tala um þetta við manninn minn um daginn og okkur fynnst báðum ég sé búin að vera ólétt forever eða eitthvað álíka =)

úff...ég er að verða brjáluð! mér fynnst ég vera alltaf svo pirruð núna! okey reyndar yfir pirrandi hlutum oft, en ég verð stundum held ég aðeins of reið...
eins og áðan stökk hundurinn uppí sófa og þær vita að þær mega ekki fara í sófann og ég varð svo reið, hélt reyndar aðeins aftur af mér með skammirnar en alveg liggurvið titraði af reiði...og kettirnir slógust í glugganum og messuðu upp gardínunum og brutu næstumþví eina skál sem ég á og ég varð brjáluð og fleygði þeim úr glugganum... yfirleitt er ég nú ekki manneskja sem böggar sig yfir hvort gardínurnar séu perfect eða ekki... ég held að þessi pirringur tengist því að ég vil fá smá frið yfir daginn og stundum bara einfaldlega nenni ég ekki að hafa dýrin í rassgatinu á mér allan helvítis daginn! þó það sé ljótt að segja þetta! suma daga eins og í dag þá langar mig að vera alveg algjörlega ein og útaf fyrir mig... allavega þegar ég er svona í skapinu... svo kanski á kvöldin þá er mér alveg sama þó það séu læti í dýrunum og svoleiðis, þetta virðist vera mest á daginn hjá mér þessi pirringur...

garg! nenni ekki að röfla meira um þetta..........................

Saturday, February 16, 2008

...

í gærkvöldi fórum við litla fjölskyldan á tónleika =)
Noise var að spila á Dillon =)
Mamma sagði að ég væri rugluð að fara á tónleika komin 8 mánuði =P
ég var reyndar ekki alla tónleikana, svo var líka rafmagnslaust í örugglega einhvern klukkutíma þannig... Það var mjög spes að labba laugarveginn í rafmagnsleysinu =)
En það var voða gaman að kíkja aðeins út, við hittum marga sem við þekkjum sem maður hittir ekki oft þannig =)og litli fékk m.a. klapp frá selmu/telmu (man ekki hvort hún heitir) vinkona bigga sem ég þekki ekki, krumma, sem samglaðst okkur æðislega og svo fékk hann bónus frá Júrí vinur Bigga og Bryndísi, þar fékk hann klapp og koss =) hann var víst voða vinsæll =)

úff akkurat í þessum skrifuðu orðum er maðurinn minn að tjékka upp húsið!!!
þessvegna ákvað ég að blogga, því ég var að horfa á TV þegar hann byrjaði og fannst frekar spúkí að heyra brakið í skorsteininum og veggjunum þegar húsið var að lyftast =S ég forðaði mér bara inní eldhús! líka ef að hurðirnar skildu festast þá hefði ég fríkað út að vera ein lokuð FÖST inní herbergi! húsið var nefnilega farið að síga smá útaf einhverju drasli hjá einhverjum burðabita í kjallaranum MIÐJUM! ég er fegin að hann ljúki þessu af því ekki langar mig að heimilið okkar hrynji! =S

Thursday, February 14, 2008

dagur eeeelskenda =P

í nótt var ég eitthvað voða veik, með ógleði og svo mikinn svima að ég komst ekki hjálparlaust að pissa =( en ég komst hjálparlaust inní eldhús þegar ég var búin að liggja andvaka í 3 tíma og hlusta á hroturnar í Bigga... þannig ég hálfskreið inní eldhús og föndraði kort fyrir elskuna mína =) það er reyndar ekkert svaka flott því mig svimaði svo mikið og svo hafði ég svo vond skæri og hefði sennilega orðið strandaglópur í stofunni hefði ég reynt að sækja betri skær... og svo skrifaði ég fallegan texta/lag með lélégum penna inní kortið og límdi mynd af okkur á það með svona uhu stick því enn og aftur komst ég ekki að sækja uhu föndurlímið mitt kæra =(
og svo setti ég kortið á náttborðið hans og gat loksins sofnað rólega =)

þegar ég vaknaði...voru tíu stórar rauðar rósir á náttborðinu mínu, æðislegir bangsar með ljóði og hjartalaga súkkulaði =)

Ég elska manninn minn!



en eitt stelpur og smá ráð takk!
áðan var ég spurð hvort mér væri ekki sama þó að fyrverandi Bigga mætti ekki vera titluð sem frænka gagnvart litla beibíinu...og í fljótfærni og hugsunarleysi sagði ég jájá.... svo fór Biggi í skólann og ég skipta um á rúminu og svona og fór óvart að hugsa um þetta og ég er ekkert svo viss um að ég vilji að hún kalli sig frænku barnsins míns...ég meina konan hatar mig útaf lífinu, fynnst ég hafa stolið hennar lífi og mun aldrey koma í heimsókn til okkar...hvað hefur hún þá að gera með að vera kölluð frænka barnsins, líka þegar einu samskiptin verða í gegnum hundana og blót og svoleiðis þá fynnst mér þetta hálf svona... svo langar mig líka ekkert til að fá kanski vandræðalegar spurningar seinna meir eins og td afhverju talar X frænka aldrey við þig mamma, eða eitthvað í þeim dúrnum...

Er ég að gera kanski of mikið mál úr þessu eða???
hvað segjið þið??

Wednesday, February 6, 2008

jæja

við vorum hjá ljósmóðir í morgun =)
litli er víst eitthvað óþekkur og situr bara...
í gær fór ég í óvænta jeppaferð og hann hefur örugglega oltið í hossingnum =P
en ég á að koma aftur í þarnæstu viku og þá verður tjékkað hvort hann verður búinn að snúa sér... spurning um að jeppast aftur og gá hvort hann velti kanski bara aftur til baka =P
Ljósan heldur að hann sé orðin svona cirka 12 merkur =)
Hann er allavega orðin rosa þungur! var hjá tannsa áðan og það var lítið hægt að gera því ég gat ekki legið á bakinu lengur en svona 2 mín! hefði kanski átt bara að leyfa að líða yfir mig þá hefði þetta kanski gengið fljótar =D þurfti alltaf að vera að setjast upp og stinga hausnum á milli lappanna! ekki gaman =(

í gær kíkti ég til grindó =)
Laufey hans Ella lánaði mér vöggusett, sæng, lök, föt og ýmislegt sem okkur vantaði =D núna er bara smá eftir að kaupa =D *spennt*

jæja búin að pústa nóg í bili =)

takk fyrir rúntinn í gær Evelyn =)
btw! ætlaði að spurja þig, veistu hvað tók langan tíma að breytast nafnið hjá Guðrúnu Hildi þegar hún lét breyta sínu??? geturu kanski spurt hana fyrir mig???

hey ögn! ég ætla að leyfa þér að eiga heiðurinn svo þú VERÐIR! að koma til íslands í heimsókn og mata hann á góðri tónlist ;)

Monday, February 4, 2008

=P

um daginn var ég ótrúlega menningarleg og fór út að borða á sushi staðinn í Iðu.
Ég hef nú alltaf haft óbeit á sushi og aldrei skilið í fólki sem að finnst það gott, en núna er ég húkt! Ég tók reyndar ögn á þetta og fékk mér eingöngu grænmetis/ávaxta sushi vegna þess að ég er nokkuð viss um að það sé ekki mælt með að borða hráan fisk á meðgöngu.....og namminamm!!!! um kvöldið lá ég andvaka og sá diskana fyrir mér í hillingum! ÞETTA ER ÓGEÐSLEGA GOTT!!!!

Annars er ég búin að hafa það gott =) er reyndar orðin ýkt þreytt á að eiga bara eina skúffu af fötum sem ég get notað =( get ekki beðið eftir að fá krílið =)
Erum búin að mála herbergið fallega grænt =) og eigum eftir að mála eina umferð yfir hilluna og svo verður farið og keypt kommóða og skiptiborð og þá er eiginlega allt komið =) ég missti mig nefnilega um daginn og keypti samfellur og föt fyrir 20þús =S
svo gat ég ekki labbað framhjá ógeðslega sætum pönkara gallabuxum sem hann á reyndar ekkert eftir að geta notað fyrren svona um eins árs =P æji þær voru bara svo ógeðslega töff!!! =)
Bara fyribyggja strax að þetta verði enginn hnakki sko! ;)
ég er reyndar ekki búin að fá að spila mikið af twisted sister eða alice cooper fyrir hann =S hehe =) en Biggi er voða dúlegur að spila Rammstein fyrir hann þannig =)

en jæja heyri í ykkur seinna, þarf að setja á mig smá andlit því ég er að fá heimsókn eftir smá =)

Thursday, January 31, 2008

=D

allt gott að frétta af mér =)
kíkti aðeins með Ara á Langa áðan að heilsa uppá Esther og aðeins að spilakassast =P
þar hitti ég Villa =) *hint hint ögn* ;) hann vissi ekki að ég væri ófrísk og þegar hann sá bumbuna þá eina sem hann sagði var; ha! vá! ha! vá! ha! vá! =D svo óskaði hann mér til hamingju =)og ég er skráð á afmælisdaginn hennar Esther =)

en jæja heyri í ykkur seinna =) er að fara að mála barnaherbergið ;)

Sunday, January 20, 2008

mér leiðist =(
er að tala við ögn á myspace og það er svo lengi á milli svara og þá byrjar mér að leiðast =(
maðurinn minn er nefnilega niðrí bæ í kvöld.

ég var að senda öggu nokkrar 3D sónarmyndir =) hún fær spesjal trítment afþví hún er svo langt í burtu...þið hin verðið bara að bíða!!!

=)

aaaahhhh....mig langaði svo í ís og snakk en var ógeðslega dúleg og fékk mér soothie og banana í staðinn =P
ÞAÐ VAR ALVEG ÓGEÐSLEGA ERFITT SAMT!

jæja heyri í ykkur seinna =)

já btw! sjáiði myndirnar sem ég setti inn á færsluna hérna aðeins neðar??
ég gat nefnilega ekki séð þær með explorer í dag... en þær koma með firefox!

FIREFOX RÚLAR!

Thursday, January 17, 2008

jæja

ég ætla núna að reyna að vera dúlegri að blogga =) þessi leti í mér gengur bara ekki lengur =)

Við vorum í mæðraskoðun í gær =) gekk rosa vel =) hjartslátturinn alveg þvílíkt sterkur =) ég fékk samt smá sjokk við að sjá hvað ég er búin að þyngjast svakalega mikið! síðan ég varð ólétt, er ég búin að þyngjast um 15 kíló takk fyrir!
svo fékk ég nýtt vottorð, sem ég var ekkert of ánægð með því ég þóttist eitthvað ætla að fara aftur að vinna...en það var bara ekki tekið í mál...

hey! ég er búin að breyta nafninu mínu!
nú loksins er það skrifað rétt! =)
í leiðinni lét ég líka færa heimilið mitt til reykjavíkur ;) varð soldið sár þegar ég fékk engin jólakort sem voru send í pósti =(

ein spurning...
mamma er orðin 60 ára og verður með smá kaffi á sunnudaginn og ég er alveg tóm í hausnum með afmælisgjöf! einhverjar sniðugar hugmyndir???
já btw þá hef ég því miður obboslega lítinn aur á milli handanna fyrir gjöf handa henni =(

Tuesday, January 15, 2008

úff

jæja vonandi heppnast myndirnar í þetta skiptið =)


Photobucket
Photobucket

Aðventuskreytingin mín =) voða cheap en mín fyrsta og gerði sitt gagn þannig =)



Photobucket

Birgir, Fjölnir og Hans á blótinu



Photobucket
Photobucket

Jóla Freyja og Jóla Ylfa =) sætar



Photobucket
Photobucket

Jólatréð =)



Photobucket

Feitabollan orðin rosalega þreytt á aðfangadagskvöld



Photobucket

Elda hvíta sósu á annan í jólum =) sósan var reyndar eins og steipa hjá mér =S en það koma fleiri jól eftir þessi þannig ég hef nægan tíma til að æfa mig =)

Sunday, January 6, 2008

ætlaði að smella inn jólamyndum fyrir ykkur en klúðraði =S
núna er ég of pirruð til að standa í þessu þannig þið fáið þær seinna =)