Saturday, October 27, 2007

=)

ég heimsótti Birnu og litla frænda í dag =D
hann er alveg indislegur =)
ég hélt á honum =)
sem sumum finnst kanski ekkert merkilegt en það er sko merkilegt hjá mér! ég hef aldrei áður haldið á svona ungu barni áður! ég var nú samt soldið stressuð, mér fannst hann nefnilega vera svo brothættur eitthvað...ég ætlaði að setja inn mynd af okkur saman en pabbi er ekki sá klárasti að taka mynd þá hætti ég við því myndirnar af mér með hann voru ekki nógu góðar...okey kanski ekki alveg pabba að kenna en samt...
everybodys foult but mine =P

úff Halloween partý á morgun og mín ekki ennþá búin að ákveða búning =(

stelpur hvað á ég að vera??? endilega koma með hugmyndir!

Friday, October 26, 2007

jæja

hvað segjiði???

=)

Monday, October 22, 2007

dúrírú =P

hérna koma nokkrar myndir sem ég lofaði ykkur stelpur =)
bætti svo sjálf nokkrum við ;)


Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Kagginn ;)

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Krummi =)

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
BUUMMBBAAA..... =P

og svo að lokum ein myglumynd af mér í kaupbæti ;)
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

ENJOY.......... =)

Sunday, October 21, 2007

GARG! nú er ég með milkshake lagið á heilanum!

SKAMM ÖGN!!!

allavega... ég fékk lítinn frænda í dag =D
Hann heitir Árni Björn og er fjórði Danninn eins og frænka mín orðaði það skemmtilega =)
ég er ekki búinn að sjá hann =( en vonast til að komast á morgun! mamma segjir að hann sé eiginlega alveg eins og við systkinin þegar við fæddumst =)
þá á ég sætan frænda sem er alveg eins og ég =)

á laugardaginn fer ég svo á Blót =)
hef aldrei farið því maðurinn minn hefur hingað til aldrei tekið mig með =(
svo eftir blótið verð ég að vera ógeðslega fljót að skella mér í HALLOWEEN búning =)
sem ég veit ekkert hvernig verður =( get ekki verið sem mig langaði því ég á ekki svarta vængi =( á engan pening heldur til að kaupa þá =(

....

Thursday, October 18, 2007

=)

við vorum að fá okkur ýkt flottan bíl í dag!!!
mitsubishi L200...
þið sem ekki vitið GOOGLE it!
hann er 2005 árgerð!
...OG ÉG KEYRÐI HANN =D

að keyra þennan bíl er eins og að skera mjúkt smjör! i know lame samlíking en vá það er æði að keyra hann!!!
varð ekkert stressuð eða neitt þegar ég keyrði hann =)

í dag gerði ég soldið merkilegt!
ég ákvað nefnilega hvaða lög á að spila í jarðaförinni minni...þegar að henni kemur þ.e.a.s...

ég vil nefnilega frekar að vinir mínir hlusti á tónlist sem ég fíla-ði og minnist mín þannig frekar en að presturinn (eða hver sem fer með athöfnina) segji eitthvað crap um mig...frekar að hver hugsi til mín á sinn hátt =)

ekki það að ég sé að fara að deyja neitt strax vona ég nú samt...

Monday, October 15, 2007

GARG!

um daginn týndi ég snúrunni frá myndavélinni minni =( svo fann ég snúru og þá var það bara einhver önnur snúra, þannig ég keypti nýja fyrir myndavélina...
svo í kvöld fattaði ég hvaða snúra þetta var...snúran við mp3 spilarann minn!!!
en neiii....ég finn hana hvergi!!!!!!!!
fjandans búálfar og endurbætur!!!
maður finnur ekkert hérna lengur!!!

íbúðin á að verða ready fyrir jól, sem ég er ekki alveg að sjá en jæja vona það besta!
en þá fær maður lítið að njóta hennar því við flytjum líklegast upp eftir áramót...

ég er orðin svo þreytt á þessu drasslisem fylgir flutningum og endurbótum!

GARG!

Saturday, October 13, 2007

ó mig auma...

MIG LANGAR SVOO Á MEGAS Í KVÖLD!!! *snökt*
Noki fékk frímiða, en ég þori ekki að biðja um fyrir mig og Birnu =(
við mundum örugglega fá en ég bara kann ekki við að spurja =(

Fyrsta skipti sem að ég fór á skauta þá endaði ég á spítala...
en í dag tel ég mig vera þó nokkuð góða á skautum =)
ÖGN! ekki láta smá klúður skemma fyrir þér!

þetta átti að vera dæmisaga dagsins =P

Ég á kött! =)
ég og mamma köllum hann krumma því hann er svo glysgjarn og stelur öllum hálsmenunum mínum! hann er grábröndóttur í framan en með doppur á hliðunum =)
hann er hálfur húsköttur og hálfur Abyssiu =)

en hann er ekki Tómas =(
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Wednesday, October 10, 2007

fjúff....

ég hefði næstumþví kanski getað verið við dauðans dyr í kvöld!!!
ég hélt ég hefði fengið blóðeitrun!!!
var í vinnunni þegar ég tók eftir rauð-bleik-fjólublárri rönd frá einum puttanum (sem ég by the way fékk sýkigu í þegar ég stakk mig á nál í slátrinu) alveg meðfram æðunum upp handlegginn á mér og nánast að blóðprufu staðnum...þessi rönd var ca 40-60 mín að koma...mín fyrstu viðbrögð voru að hringja í bigga, svo í mömmu...og ég get alveg viðurkennt það að meðan ég talaði við mömmu þá var ég alveg við það að fara að gráta ég var orðin svo hrædd! þau bæði sögðu mér að fara uppá bráðamóttöku og láta tjékka á þessu EF að þetta skildi vera blóðeitrun!
núna kemur asnalega forgangsröðunin í mínu lífi;
meðan biggi brunaði að sækja mig á hugsaði ég bara um að fá mér kaffi og sígó, sem að ég gerði, svp áðuren ég labbaði út úr bílnum þá sagði ég bigga að ef að ég yrði lögð inn skildi hann fara beint tí bíl og sækja kók handa mér! og ég sem var hætt að drekka kók! alveg merkilegt hvað dauðinn knýr mann til að gera =P
svo skoðaði læknirinn þetta og þá var þetta víst sogæðabólga! sem að er í beisiklí eitthvað drasl í líkamanum að vinna gegn sýkingum...EN má mjög auðveldlega líkja við blóðeitrun! er víst svakalega líkt! og ég fékk pensilín gegn sýkingunni og lítinn plástur a puttann!!!
en á samt að fylgjast vel með röndinni því ef hún fer ofar en olnbogi þá getur verið blóðeitrun, en hitt á víst ekki að fara neitt ofar....
OG...þar af leiðandi er ég buin að stara á hendina í allt kvöld og ýminda mér þetta hverfa smám saman því ég ætla mér sko ekki að fara alveg strax undir græna torfu TAKK FYRIR PENT!!!

Saturday, October 6, 2007

Jóla Jóla Jóla

hvað...?

var að taka slátur með mömmu og pabba =)
ég get svo svarið það að handleggirnir mínir verða stjána bláa sterkir eftir þetta!
ekkert smá erfitt að hræra!!!
Svo vorum við alltaf að metast hver væri snöggastur af okkur að sauma fyrir vambirnar of keppina =P mamma er LANG LANG snöggust!
svo hringdi ég í Bigga og bauð honum að koma í blóðpönnukökur, þá varð mamam fúl og sagði að núna heldur hann örugglega að við séum einhverjir villimenn....

þrátt fyrir sóðaskapinn sem fylgir þessu þá var þetta mjög gaman! =)

þarf að læra þetta svo maður geti nú tekið slátur með erfingjanum þegar ég verð orðin gömul og grá =)

en allavega...seremonían verður líklegast ekki fyrren eftir áramót!
ekki halda að við ætlum að beila á þessu því það er ekki rétt...
við sjáum bara fram á það að það sé hentugra fyrir okkur fjárhagslega, jólin og svona að koma þannig...

þessvegna er mig aftur byrjað að hlakka til jólanna því þau verða víst næst núna ;)

Wednesday, October 3, 2007

wierd dream

dreymdi skrítinn draum...
hann var þannig að ég var í heimsókn hjá Ögn og Dnash, og Dnash vildi ekki að ég og Ögn værum vinkonur, en vildi samt ekki að Ögn vissi að hann vildi það ekki, þannig hann tók mig afsíðis og eiginlega öskraði á mig Go Erna! Just Go!!!
þá sparkaði ég í punginn á honum og hljóp burt.....

Tuesday, October 2, 2007

jæja

athöfnin...hmm...okey mig langar til að hafa hana í nóv =) þeir sem EIGA að vera viðstaddir verða; mamma+pabbi, Arinbjörn, Daniel, Elli+Laufey, Birna, Evelyn og Ögn =) langar líka voða mikið að hafa Hrönn en hún kemst örugglega ekki =(

allavega endilega láta mig vita hvort nóv hentar ykkur =)
Ögn mátt láta mig vita bara í e-mail svo það fréttist ekkert ;)

á svo eftir að koma með betri dagsetningu síðar ;)


Við skoðuðum hringi í gær =)
ég vil bera fallegasta hringinn í öllum heiminum!!! okkur er alveg sama um verðið bara að okkur líki hringarnir... ætlum ekkert að vera að skoða bara hringa á einhverju verðbili *fuss* =) en vá úff! þeir voru hver öðrum fallegri þannig það verður ekkert smá erfitt að velja!!! een þarsem við erum með nokkrar hugmyndir samb við útlitið á hringnum þá ætti það verða örlítið auðveldara =)