Thursday, March 20, 2008

jæja

jæja Jökull Páll er komin með barnalandssíðu =)

Sunday, March 16, 2008

Lítill keisari =D

jæja litli unginn okkar er kominn í heiminn =)
Hann ákvað að koma 6 dögum fyrir settan dag =)
Hann er yndislegur =) fæðingin gekk frekar illa og tók þetta 17 og hálfan tíma, en var sko alveg þess virði þegar ég fékk hann í fangið =)
hann var tæplega 15 merkur eða milli 14 og hálf og 15 og 52cm, ljóshærður með rauðan blæ á hárinu, nákvæmlega eins og pabbi sinn og alveg yndislegur =)
Og var hann nefndur Jökull Páll =)

ég set inn myndir leið og ég get...fæ dótið til þess í kvöld...

núna erum við búin að vera hjá mömmu síðan á föstudag og gengur alltaf betur og betur með hverjum deginum =) en hann er soldið erfiður á nóttunni =( síðustu nótt fékk mín ekki nema 2 og 1/2 tíma svefn =S sem er ekki alveg það sem ég er vön. ég með mína Zombie morgna í Arnarvík =P og 12 tíma fegurðarblunda =P hehehe =)
ég reyni bara að vera dúleg að leggja mig yfir daginn með krílinu =)

en jæja blogga meira seinna =) og læt ykkur vita þegar prinsinn verður kominn með síðu =)